Góð heilsa er gulli betri!...

Skiptir öllu!

07.02.2008 11:29:26 / seolafs

Búin að flytja mig á www.settaola.bloggar.is/

Er komin með nýtt blogg. Var alltof mikið vesin á þessu. Það er líka oft bilað.  Svo var síðan mín tekin út hjá þeim í smá tíma en er komin núna inn aftur. Sakna samt mest að fara frá henni af því það voru mjög falleg orð kominn inn á gestabók og í bloggið frá ykkur. En hér kemur ný síða og ef þið viljið þá skrifið þið inn á bloggið með mér og höfum hana á lífi. Þessi síða verður hér http://blog.central.is/seolafs. Það er fullt af fróðleik á henni sem má skoða áfram. En ég held áfram á www.settaola.bloggar.is/
Kær kveðja Setta...

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 12:28:34 / seolafs

Helgin búin- Smá fyrir okkur sem elskum nammi.

Nammidagurinn búinn eða hjá þeim sem höfðu hann. Mig langar aðeins að skrifa um hann af því ég hef verið að tala annsi mikið um hann. Okkur öllum finnst gott nammi. Ekki bara við konurnar sem erum veikar í súkkulaði. Er það kannski? ;)

Margir hafa nammidag í hverri viku í takt við nammidag barnanna á heimilinu. Nammi, þá meina ég sælgæti er alltaf samt mjög óhollt. Það breytist ekki, þó það sé nammidagur. Nammidagurinn átti líka að vera þannig að þú áttir að geyma nammið sem þú fékkst í vikunni fram á laugardag. Ekki fara út í búð að kaupa meira nammi. :P

Við verðum að passa að þessi dagur fari ekki úr böndunum með því að lengjast í báða enda. Byrjað á föstudag og svo klára allt saman á mánudaginn. Nei, nei, þú verður að halda þig við einn dag í viku.

Það er gott að skipulegja nammidaginn vel. Hvaða dag í vikunni er best að hafa nammidag en ekki gleyma að hann er færanlegur ef þú ert með saumaklúbb eða veislu í vikunni verður sá dagur bara þessi eini nammidagur í vikunni.

Ef þér er boðið upp á nammi (eða kex) í vikunni.
Þá er þetta ekki nammi. Þú horfir á þetta og hugsar mikið er þetta fallegt skraut. :D ÞETTA ER EKKI ÆTT :evil:

Ef þú ert ekki að fara þá leið að hafa nammidag í vikunni en borðar bara nammi þegar það á við. Hafðu það þá í smærri skömmtum. Mikilvægt er að hafa í huga að borða hollan og næringaríkan mat ekki bara skyndibita, sælgæti, snakk og gos.
Ef við erum svöng er ofsalega erfitt að standast, hvað þá hófsemi.

Sumir vilja meina að það sé gott að sjokkera mann með nammidegi.
Ég sjálf er samt ekki að skilja það. Þetta er jafn óhollt. Á hinn bóginn trúa margir því að vikulegur nammidagur sé ekki af hinu góða og að fólk ætti frekar að læra að umgangast sælgæti, snakk og gos og slíkt af skynsemi eða í hófi. Hver og einn þarf að meta hvað á við sig. 

Setjum okkur reglu sem við ráðum við. Við viljum að börnin okkar fari eftir reglum. Þá skulum við gera það sjálf. Verðum fyrirmynd.

Munum að borða morgunmat og borða reglulega yfir daginn þó það sé nammidagur. Sumir hugsa það eru svo margar hitaeiningar í sælgæti. Sleppum að borða mat, þá má ég borða meira nammi.

Líkaminn þarf að fá sín næringarefni. Ef þú ert svo heppin að borða ekki sælgæti en ert samt með of mörg kíló af fitu. Þá væri kannski vert að skoða matræði þitt.

Staðan er þú ert að fá of orkuríkan mat.
Þú getur haft nammidaginn þinn með öðru sniði og eldað fínni mat (orkuríkan) og endað með desert á nammidögum.
Við verðum að meta hvað hentar okkur og munum að við léttumst ekki nema að við viljum það sjálf. Það er ekki farið út að kaupa eitthvað til að létta líkaman. Ó, nei, borða hollt og virkja vöðvana.
Kær kveðja Setta... :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 14:26:47 / seolafs

Ertu að hugsa um að massa þig?

Þegar maður er að massa sig, þá skiptir mataræðið miklu máli. Það má ekkert vanta og borgar sig að borða vel af öllu hollu.
Borðaðu mikið af próteinríkum fæðutegundum eins og t.d. KEA skyri, fiski, kjöti og kjúkling.


Hér er gott matarræði fyrir þá sem vilja vöðvauppbyggingu.

Bronson vítamín, kreatín (vöðvauppbyggjandi), glútamín (viðheldur vöðvamassa svo hann rýrni ekki) og brennslutöflur ef þú þarft að losa við fitu. Þetta sem ég var að telja upp fæst í Fitness Sport og nánari upplýsingar fást á heimasíðu þeirra, sjá link hér. http://www.fitnesssport.is/
Harkan sex.
6:00 Æfing lyfta
7:15 Próteinsjeik með haframjöl út í (blandað í vatn).
9:00 einn ávöxtur (yfirleitt banani)
11:00 4-6 eggjahvítur
12:45 Hádegismatur. Hreinn en það má borða kolvetni (hrísgrjón, kartöflur og þannig). Borða td súpur, grænmeti, fisk eða kjúkling.
15:00 Próteinsjeik með haframjöl útí. frosnir ávextir og rúsínur...mmmmm.
17:00 Einn ávöxtur (helst ekki banani).
17:30 Brennsluæfing, hlaupa, hjóla eða .... 
19:00 Kvöldmatur. Prótein 70% og rest grænmeti. Sleppa hér kolvetnum, þe kartöflum, hrísgrjónum og þannig 
Ekkert eftir kvöldmat. 
Alltaf nóg af vatni. 
Ekkert brauð og engar unnar vörur (td. pylsur, skinku og þannig) 

Maður er alltaf að læra á líkamann sinn og þarf jafnvel að breyta, hvort sem er að borða minna eða meira. Við þurfum að gera okkur grein fyrir skammtastærðinni líka. Ekki gúffa í okkur, ekki of lítið heldur, borðum oft á dag...þe. 2 - 3ja tíma fresti ca. 
Þetta er fæði miða við að þú þurfir líka niðurskurð (losna við fitu líka). 
Já, svo er alltaf nammidagur á laugardögum :) Þá má nánast allt.
Kveðja Setta...;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 12:09:00 / seolafs

Hér og nú!

Ég fór í jóka í morgun alveg óvart, hélt að þetta væri líkamsrækt en var jóka (sem er líkamsrækt). Það kom yfir mig alveg furðulegt andartak þegar við áttum að hugsa inn á við.

Ég er ekki mikil jóka manneskja, ég vil vinna með lóðum og hreyfa mig mikið. En þetta var bara gott. Já ég fékk svona ótrúlegt blik. Fann þar sem ég stóð hér og nú í jókanu átti ég bara ekki neitt. 

Ekki mann (JPE) ekki hús og ekki pening eða skuldir. Ekki börn, ekkert. Fann vanmát minn. Hvað er maður í raun ef þú hefur ekkert... Þar sem ég stóð og átti að hugsa um ekki neitt og ekkert var.  Nema hér og nú. Þarna stóð ég í æfingagalla og er mjög fátæk. Það er hægt að senda ást í huganum, en það átti ekki að gera. Þið eruð kannski ekki alveg að skilja þetta...:D 

Í raun og veru ef maður fer inn í draum eða inn í móðuna miklu þá geturðu ekkert tekið með þér. Ekki menntun, frægð eða frama. Við erum öll í raun alveg jafn rík eða fátæk. Þetta veit maður en ég upplifði þetta svo ótrúlega furðulega.

En hver er besta leiðin til að léttast?
Besta leiðin til að léttast er að neyta næringarríkrar fæðu í skynsamlegu magni og fá næga hreyfingu.
Þú getur grennt þig eftir ýmsum leiðum en oftast er það í smá tíma. Þegar fólk tekur upp sínar “gömlu” neysluvenjur á ný fá flestir þá á sig aukakílóin að nýju og jafnvel fleiri.

Lykillinn að því að ná að halda sér í kjörþyngd er reglubundin hreyfing og varanlegar breytingar á mataræði.  Þú verður að passa þig á að mataræðið verði ekki einhæft því það leiðir til leiða og uppgjafar fyrir þig. Til að léttast varanlega þarf að hreyfa sig reglubundið. Þjálfun brennir hitaeiningum og eykur grunnbrennslu líkamans.

Hófsemi.
Ekki eltast við hina og þessa skyndikúra. Leggðu áherslu á að temja þig við hófsemi. Skammtaðu hæfilega á diskinn og borðaðu hollt og fjölbreytt fæði. Góðar neysluvenjur fela í sér kolvetni, prótein og fitu. Góð uppspretta af kolvetnum eru ávextir, grænmeti, gróft korn og baunir. Heilsusamlegar olíur eru ein- og fjölómettaðar olíur t.d. ólífuolíu. Einnig finnst holl fita í feitum fiski, hnetum, fræjum og avókadó.
En jafnvel holl og góð fæða getur valdið aukakílóum ef þú borðar hana í of miklu magni. Jafnvægi í neyslu og hreyfingu er eina raunhæfa leiðin til að stuðla að langvarandi þyngdarstjórn og góðri almennri heilsu.

Í gær var ég að skrifa um að ég heyri svo ansi oft afsakanir eins og ég kemst ekki, það er svo mikið að gera hjá mér núna. Umferðin var svo mikil og ég bara nenni ekki að drífa mig á stað. Ég var á fundi og komst ekki og margt fleira. 

Ef við stoppum þetta ekki er voðinn vís. Við verðum latari og betri við okkur sjálf. Við erum í raun of góð við okkur sjálf. Það þarf oft hörku til að koma sér á stað í ræktina. Oft er ástæðan gild en það eru aðrir tímar í sólarhringnum ef þú kemst ekki í þennan eina líkamsræktatíma sem þú ætlaðir í. Það eru aðrir sem geta líka leyst þig af.

Mundu þú skiftir máli og þarft að gera þetta fyrir þig sjálfa/n.

Ef þú heyrir vel, þá heyrirðu í líkamanum eftir æfinguna segja: Takk fyrir að fara svona vel með mig og ég skal lofa að reynast þér vel um ókomin ár.

Kannski væmið en þetta er staðreynd ef þú hugsar um heilsuna þá færðu það margfalt borgað. Það eru forréttindi að fá að ganga. Ekki láta aðra halda í þig þegar þú ætlar að mæta. Bara áhveðin/n. 

Hei, verð að fara er að fara í ræktina kl ..... Sjáumst hress baráttukveðja setta....;) 


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.01.2008 13:55:45 / seolafs

Teiknað í sandinn

Ég var búin að skrifa hér alveg glás en svo fór það allt áður en ég var búin að vista. Nenni ekki að skrifa það aftur en þetta á vel við í dag.

http://www.hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1523


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 14:29:17 / seolafs

Hvernig sérðu þig?

Jæja þetta var skemmtileg vika, var tekið á því að borða rétt og hollt. Ætla að halda áfram að vanda valið og borða reglulega og hollt, drekka nóg vatn, borða ávexti og grænmeti. Hreyfa mig, sofa nóg, slaka á og gefa mér tíma fyrir sjálfa mig. Þetta ætlar þú líka að gera...:haha: 

Ég ætla aðeins að tala um allt annað eins og hvernig sérð þú þig í framtíðinni eða í dag?
Ertu hraust/ur? Glöð/glaður? 

Ef þú ert að sjá þig feita/n, óheilbrigða/n og óánægða/n.
Þá verður lífið þitt þannig:S

Hef aðeins verið að tala núna á stuttum tíma við reykingarfólk sem langar að hætta að reykja. Málið er það gildir sama um það að hætta að reykja og að hætta að borða sykur, óhollt eða of mikið.

Þú getur þetta ef þú ætlar þér og best er að sjá þig eins og þú vilt vera...:haha:
Taktu þér ekki langtíma markmið það er bara allt of erfitt.
Byrjaðu í núinu. 1 klukkutími verður að 1 viku sem verður að 1 mánuði og svo kemur 1 ár.
Hafðu trú á þér, hver gerir það ef þú gerir það ekki.
Brosa inn í hjartað þitt, vertu góð/ur við þig. Ekki vera dómhörð á þig..****

Gott að vita.
Hverja langar ekki til að vera í góðu formi og líða vel?
Þá á maður að borða morgunverð og reglulega yfir daginn með réttu mataræði, minnka fitu og sykurát. Ef við borðum oft en lítið í einu viðhöldum við brennslunni gangandi. Það slökknar ekki á kindingunni ef það er nóg af brennanlegu efni.

Hreyfing er nauðsynleg aðeins 20 mín gera gagn.

Sjáum okkur og verum hamingjusöm, falleg og frísk. Ég heyrði fyrir stuttu konu segja við sjálfa sig í spegilinn, mikið er ég ljót. Þetta gerum við ekki, þetta hugsum við ekki. Því við erum mjög hugguleg og flott. Þessi kona var það líka.
Elska ykkur, þið eruð flottust. Kveðja Setta....:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 00:23:12 / seolafs

Hvers vegna klikkar fólk á mataræðinu?

Þá er þessi vika að verða búin og bara búið að ganga vel. Skil ekki hversvegna maður klikkar alltaf á matræðinu, ég til dæmis gleymi alltaf að borða. Fór á kaffihús á föstudaginn og það bjargaði mér alveg að ég var södd, annars hefði ég farið í eitthverja bombu. Það er mjög gott að ákveða fyrir fram hvað maður ætlar að borða og undirbúa allar máltíðir vel. Þannig maður er aldrei tómhentur þegar maður á að borða. Gott er að láta símann minna sig á á þriggja tíma fresti.

Ekki sleppa æfingu því það kom annað upp á: Ef þú sérð fram á að ná ekki fullum klukkutíma í æfingar reyndu þá að komast frá í 20 mínútur og taktu stutta en ákafa æfingu ( þær eru ekki minna áhrifaríkar ). Ef þú sérð fram á að geta alls ekki æft allan daginn þá skaltu hugsa enn meira um mataræðið og passa að það klikki ekki líka.  Að geta ekki æft er í lagi í eitt og eitt skipti en ef mataræðið klikkar líka ertu helmingi verr staddur.

Ég held að ég drekki ekki nægan vökva: Vatn er mikilvægasta efni líkamans. Við töpum u.þ.b. tveimur til þremur lítrum af vatni á dag og þurfum að bæta það upp. Fólk sem hreyfir sig mikið þarf enn meira. Að drekka vatn er beinlínis grennandi því það dregur úr matarlyst og kemur í veg fyrir að við borðum yfir okkur.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.01.2008 10:16:47 / seolafs

Reglan er að borða!

En til hvers fæðubótarefni?
Ég hef verið spurð um það hvort það sé gott að taka svona fæðubótarefni.
Þarf maður nokkuð að vera að taka svona prótein- fæðubótaefni ef maður borðar bara rétta fæðu, hollt og gott. Það er pínulítið erfitt að svara þessu, en ég vil meina að ef þú ert að hreyfa þig mikið, vilt léttast og/eða byggja þig upp er mjög erfitt að fá t.d. nógu mikið af próteinum í "venjulegum" mat, án þess að borða of mikið af kolvetnum og fitu. 
Ein af aðalástæðum þess að fólk nær ekki tilskildum árangri í baráttunni við kílóin er illa samsett fæða, t.d. of lítil próteinneysla og of mikil kolvetnisneysla. 
Oft á tíðum er stöðnun tilkomin vegna þess að fólk er bundið við sömu æfinguna og er alltaf með sömu næringuna. Prófaðu að breyta því hvernig þú æfir eins og að borða ekki alltaf það sama á hverjum degi.
Ef drykkur inniheldur prótein þá er langbest að fá sér próteindrykk strax að lokinni æfingu eða innan við klukkustund að henni lokinni. Við borðum kolvetni fyrir æfingu. Það er mikið um fæðubótarefni á markaðnum og kannski erfitt að átti sig á því hvað er hollt og gott fyrir okkur og hvað ekki.  Fjölbreytileiki í þessum vöruflokki er hið besta mál en margt sem kallað er næringarstangir eða próteindrykkir eru fullir af sykri og innihalda miklu minna prótein en kolvetni. Það þarf því að vanda valið. Við viljum ekki yfirfylla orkubirgðir líkmans. Með því að skera niður kolvetnisríkar máltíðir fram eftir deginum tryggjum við að umfram orka (kolvetni) umbreytist ekki í fitu og fari í forðabúr líkamans.
Ég hef ekki notað Herbalife, það litla sem ég hef prufað finnst mér leiðigjarnt. Þeir sem ég er í kringum í líkamsræktinni mæla flestir með EAS. Við viljum samt borða, tökum með okkur nesti ávöxt og hrökkbrauð með grænmeti, skyr. Ég nota EAS sjálf oft og mæli með þeim. Tel þau vera ein af þeim bestu á markaðnu og á góðu verði miðað við önnur bætiefni.
Flestar tegundir próteinsúkkulaðis og próteindrykkjanna frá EAS eru mjög vel samsettar, það er að segja innihalda lítinn sykur, litla fitu (sérstaklega mettaða fitu) og nóg af próteini, sem oft er erfitt að fá nógu mikið af í fæðunni. Munið þó að skoða aftan á próteinsúkkulaðin og velja stykki sem ekki eru með meira en 10-12 gr af sykri.
Við þurfum meira prótein þegar við erum að lyfta og/eða viljum missa fitu.  Mikilvægt er að halda blóðsykrinum stöðugum yfir daginn. Þá er gott að grípa í þetta. Mæli samt með því að borða ef við höfum tíma til. Oft reynist samt erfitt að fá réttu samsetninguna yfir daginn.  Ekki viljum við lifa engöngu á fæðubóta vörum. Betra er að læra að borða rétt.
Ef þið viljið byggja upp vöðva og/eða missa fitu og eruð að lyfta. Við þurfum helst að fá prótein þegar við erum að lyfta. Fá sér hreint prótein. Þá myndi ég alveg mæla með svona drykk t.d. kl. 10 á morgnana, ásamt ávexti eða kl. 16 á daginn. Ég myndi þó síður mæla með þessu rétt fyrir svefninn en það er vegna fitumagnsins.
Súkkulaði
Próteinsúkkulaðistykkin eru alveg rosa góð, eins og besta nammi. Einnig eru litlar stangir sem þeir kalla Morning Shine mjög góðar. Innihalda þó aðeins minna prótein en meiri trefjar en próteinsúkkulaðið og eru hugsuð sem morgunsnakk. Flott snakk fyrir hádegi fyrir þá sem eru í 6 máltíðum á dag. Allar stangirnar innihalda hins vegar um 50% fitu (þar af mettuð fita 17%) sem er heldur hátt fyrir þá sem eru að reyna að létta sig. Til samanburðar innihalda flestar næringarstangir frá EAS um 20% fitu (þar af mettuð fita 13%). Svipað magn er því af mettaðri fitu (vondri fitu) í EAS stöngum og Atkins stöngum. Almennt er talað um að 20% af fæðu okkar eigi að vera frá fitu. Næringarstangirnar frá Atkins eru líka allavega rosalega góðar á bragðið, með fína prótein- og kolvetnissamsetningu og gott að sjá mettaða fitu í minnihluta.
Ég verð ekki með laugardagstíma, breyttist aðeins áformið vegna veðurs.
Gangi ykkur sem allra best!
Kær kveðja Setta,
 r
eglan er að borða eins og drottning/kóngur á morgnana, prinsessa/prins á daginn og betlari á kvöldin. Notaðu próteindrykki í stað máltíða ef ekkert er annað betra í boði. Við þurfum að borða tvær staðgóðar máltíðir. Síðasta máltíðin þarf að vera örlítil kvöldhressing.
http://blog.central.is/seolafs?page=viewPage&id=1877538

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 14:19:59 / seolafs

Og ekki gleyma að lifa....

Það er um að gera að fara hægt og varlega af stað og gera hlutina með mýkt því það er löngu sannað að líkaminn breytist ekki með ofbeldi og ásetningi. Mikilvægast er að leggja af stað með jákvætt hugarfar og setja sér markmið, í stað þess að fara af stað með heift líkt og fólk gerir gjarnan.
Þetta er mjög góður punktur!

Ef þið eruð að fylgast með þá var ég mjög ánægð með mig í gær fór í afmæli í gær og stóð á mér. Ég fór í 1800 h.e. sem er bara allt í lagi. Borðaði fyrir afmælið og sá alveg hvað mátti borða í afmælinu (hollt) og sötraði smá kaffi (sem er ekki hollt).

Tek það fram að ég er að borða. Það er tvennt ólíkt að borða rétt og að sleppa alveg að borða. Sem margir halda að það sé rétta leiðin til að grennast. En þá ertu að skemma svo mikið fyrir þér ekki bara heilsuna, líka þegar þú byrjar að borða aftur þá fer þetta allt í fitusöfnun.
 

Ég fann það í gær, manni líður svo vel af því að borða rétt á matmálstímum. Ég á það til að sleppa að borða dagsdaglega. Læt það ekki í forgang. Finn að bjúgur sem ég er stundum með, ekkert alvarlegan en samt eitthvað, er allur farinn. Ég var búin að ákveða að vigta mig ekki fyrr enn eftir þessa viku en fór samt í dag. Fer alltaf á sömu viktina og það eru 2 kg í mínus. Sem er annsi mikið. Vona að ástæðan sé út af bjúgleysi. Því það er ekki gott að léttast of hratt það kemur aftur á mann (eins og ég sagði áðan).

Allavega þessi hörkuvika er að skila mér árangri. Það verður ekkert nammi í henni.

Ég er búin að ákveða að halda áfram eftir þessa viku og þá verður nammidagur í henni, laugadagurinn. Smá gulrót. ;)
Mig langar ekki í nammi: Ástæðan er, þegar maður passar að borða reglulega verður blóðsykurinn jafn og það hjálpar manni rosalega mikið. 

Nammi getur líka verið mjög hollt. :haha:

Maður fer að sinna líkamanum á allt annan máta ef maður ákveður að sýna honum alúð og natni og ekki gleyma að lifa í kærleik og blíðu.

Þegar við þurfum að velja hvað við ætlum að elda er gott að hafa í huga að jurtamatur er bragðbetri og auðmeltanlegri en annar matur og ekki síður fjölbreyttur.  Hann skilur eftir sig þægilega ánægju- og vellíðunarkennd, fínleika og léttleikatilfinningu, lífsorku og frískleika hugar og líkama.

Hafa ber í huga að vegna tiltölulega fárra hitaeininga í jurtafæðu er  offita lítið vandamál.  Offita er áhættuvaldur margra sjúkdóma eins og hás blóðþrýstings og kransæðasjúkdóma.

Fólk sem er á jurtafæði almennt verður sterkara, þrekmeira, þolnara og liðugra en flólk sem lifir mest á kjötfæði.  Íþróttamenn á jurtafæði hafa til að mynda náð hlutfallslega betri árangri í íþróttum en kjötétandi félagar þeirra.

Fiskur er líka gulls ígildi og allur maturinn sem við borðum er mismunandi frá degi til dags. Það er ekki ætlunin að hver máltíð eða hver dagur gefi jafn mikið af öllum næringarefnum. Það sem skiptir máli er hvernig maturinn er samsettur yfir vikuna eða lengri tíma og að í heildina hafi samsetningin verið góð og fjölbreytt og úr öllum fæðuflokkum.

Vona að þið séuð að spá í að borða rétt og hollt með mér kveðja Setta.....Verð með laugadags tímann kl 10:00..:D


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 14:56:39 / seolafs

Hversu oft erum við að borða?

Dagur 3
Hörkuvikan gengur bara vel, er bara ákveðin að borða rétt kem mér samt á óvart hvað ég borða lítið í h.e. Ég er samt ekkert svöng. 

Þegar maður er að skrá hvað maður er að borða (matardagbók) og telja ofan í sig. Þá fer maður ekki að skemma allt með einhverju sem toppar allt eins og nammi sem er kannski eins og ein máltíð í h.e. 8|

Það er mjög gott að gera matardag bók í smá tíma. Ég man þegar ég gerði það í fyrsta sinn þá var þetta bara full vinna. En trúðu mér þetta kemst í vana eins og allt annað. Þó ég sé ekki að mæla með því að fólk skrifi allt sem það borðar í lífinu. Þá er einn og einn dagur góður til að kortleggja sig.

Mæli með þessum http://www.hot.is/day.php

Af skoðanakönnuninni á síðunni erum við að borða.

1 - 2 máltíð               3%
2 - 3 máltíðir            3%
3 - 4 máltíðir            27%
4 -5 máltíðir             36%
5 - 6 máltíðir                      15%
7 eða Fleiri máltíðir            3%

Hefði viljað sjá alla borða 5-6 máltíðir.

Ég þarf sjálf að leggja mig alla fram til að borða á matmálstímum.
Dagurinn í dag. Morgunmatur: Hörfræolía, vatn hafragrautur rúsinur,ein gulrót og kaffi.
Gleymdi að taka með mer nesti eins og ávöxt fyrir 10 kaffið.
Borðaði hádegismat: Túnfisk (sauð hann sjálf ekki úr dós),  eggjahvítur, allskonar grænmeti eitt brauð og vatn og kaffi. 10 kaffinu hjá mér og hádegismatnum er oft sleppt og ekki borðað fyrr en svona kl 14:00. Þá er maður svo svangur og borðar mikið í einu en það á ekki að gera ef maður er að hugsa um að léttast eða þyngjast ekki.
En þessa vikuna er tekið á því.

Svo er bara passa upp á að borða hollt í kaffinu og svo vandast málið það er afmæli í dag. Sem er alveg gaman, EN þegar maður er búin að ákveða eittnhvað verður maður að standast. Allavega er ég þannig. 

Það er mjög gott að borða eitthvað fyrir veislur því að oft er ekki alveg það sem má borða í veislum. 8| 

Vona að þið hafið gaman af þessari viku og vona bara að þið verðið með í huganum alla vega... :D

Smá fróðleikur um egg og kólesteról. Það sem ræður um kólesteról í blóði er magn mettaðrar fitu í fæðunni en einnig það hversu kólesterólrík fæðan er. Eggjarauður innihalda mjög mikið af kólesteróli, eða 1120 mgí hverjum 100 g. Í eggjahvítunum er hins vegar ekkert kólesteról. En fullt af próteinum og það er oft það sem okkur vantar í fæðuhringinn okkar.
Kærar kveðjur Setta.....;)


 


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 23:20:29 / seolafs

Hvað á að borða mikið?

1500- 1800 he. Passa bara að borða rétt maður þarf ekki nammi til að halda sér á lífi c",) en ég kannast við tilfinninguna. Ef maður er að borða mjög vitlausa fæðu, of langt á milli máltíða og þú ert að fá of litla næringu úr fæðunni þá kemur þessi mikla sælgætisþörf.

Ég hef verið megaholl það er hægt að venja sig á hollan mat og losa sig við þessa miklu óhollustu, ef ég get það þá getur þú það. Það er bara létt að borða rétt.

Ekki gleyma að borða, ef maður vill léttast á ekki að borða lítið!
Þá fer líkaminn að halda í hvern einasta matarbita.

Til að losna við aukakílóin þarf líkaminn að brenna fleiri hitaeiningum en hann innbyrðir.
Verum dugleg að æfa, það er lykilatriði til að ná árangri og halda honum.

Heilbrigði og hollusta = 1,2,3,  Mikil hreyfing, hollt fæði og umfram allt að gæta hófs.

Dagur eitt er búinn þá er að halda áfram í dag með þessa hörkuviku... Eru þið með?
Óska ykkur góðs gengis ef þið eruð með... ;)
Kær kveðja Setta...:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.01.2008 23:02:51 / seolafs

Hörkuvika

Nú stöndum við saman þessa viku borðum rétt.

Olst þú upp við það að borða allt og klára allan matinn sem settur er á diskinn hjá þér?

Það er staðreynd að ef það er skammtað of mikið á diskinn þá getur það valdið offitu. Gott er að borða alveg nýtt ekki alltaf það sama. Ef þér finnst þú standa í stað en langar að grennast. Þá er gott að borða alveg nýtt mataræði, ekki vera föst í því sama alltaf.

Þessa viku verðum við saman, við ætlum bara að borða hollt, en
hvers vegna viku?  Af því að smáir hlutir gera gagn sem má klára, hrósa og þakka fyrir - ekki gera of stóra hluti í einu.  

Borðum 5 - 6 litlar máltíðir á dag, lítið í einu. Drekkum mikið vatn, ekki sykraða gosdrykki.

Borðum kjúkling, fisk, hýðisgrjón, grænmeti, ávexti, gróft brauð. Ekkert hvítt hveiti (ekki eins hollt og heilkorn) ekki hvítt brauð eða hvítt pasta. Má fá smá smjör (ef þarf) sleppum osti þessa viku. Áleggið er td, grænmeti, kjúklingur, túnfiskur, kotasæla, eggjahvíta. Þetta er allt gott á brauðið.

Ekki hvítan sykur, nammi eða sælgæti, ekkert kex nema hrökkbrauð. Í hvítum sykri er bara orka engin nærin. 

Við borðum fitulitlar mjólkurvörur (pössum okkur á sykrinum í mörgum þeirra).

Forðumst mikið unnar vörur, helst að sleppa þeim alveg, eins og pylsum, bjúgum, allt sem er reykt, ekkert kjöt- og fiskfars, ekki skyndibita.

Komum líka í veg fyrir það að borða of mikið. Forðumst freistingar. Við fáum engan móral þessa viku. Við stöndum saman í þessu er það ekki?? :lol:

Það er mjög gott að passa matræðið því það er eitt af lykilatriðunum til þess að ná árangri í líkamsrækt og að halda góðri heilsu. . Gangi þér vel og tölum saman og vinnum saman það er svo gaman.... :D Kveðja Setta...:haha: Vona að við verðum saman í þessu. ;)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 14:35:39 / seolafs

Snjór.

Hvað finnst ykkur um snjóinn?
Er hann að fara í taugarnar á ykkur?
Er allt ómögulegt og maður kemst ekki neitt?

Ég verð að viðurkenna það að ég hef verið ansi pirruð út í snjóinn. Til hvers?
Hann er bara æði :haha:

Ertu kannski búin/n að plana að fara út að ganga í honum?
Það er enn erfiðara að ganga og verum bara jákvæð.

Ég veit að margir eiga kort í líkamsræktarstöð og koma sér ekki af stað til að æfa (út af snjónum og veðrinu). Aðrir eru ekki að fara kaupa sér kort og ætla að fara meira út að ganga en koma sér ekki af stað (út af þessum snjó;). Margir eru ekki að splæsa á sig korti því það er dýrt að æfa og hafa kannski átt kort og ekki nýtt það nóg.

Málið er að leyfa sér ekki að stoppa að æfa. Auðvitað er gott að vera heima í sófanum. En spáið í það hvað maður hefur gott af því að hreyfa sig og líðan á eftir æfinguna, hún er dásamleg.

Finnst samt að það ætti ekki að vera dýrt að æfa. Heilbrigðisvöldin ættu að greiða niður æfingargjöld fyrir þá sem eru tilbúnir að æfa. Þetta er bara sparnaður fyrir ríkið ef fólk stundar líkamsrækt.

Það hefur verið svoldið mikið í umræðunni að fá sér góðan vin. Til að koma með sér til að æfa. Það er bæði kvetjandi og vinurinn dregur mann áfram í ræktina. En ég bið og vona að fólk láti það ekki stoppa sig ef enginn vinur er til staðar. Það er alveg jafn gaman að fara einn. Tilvalið til að fara út að sjá fólk og spjalla. Mér finnst ekkert mál að fara ein af stað. Oft ef tveir fara að æfa saman þá kynnist maður ekki hópnum eins vel og þegar maður fer einn. Þannig verum jákvæð þótt maður sé bara einn á ferð við erum að gera þetta fyrir okkur sjálf að æfa.

Auðvitað þarf maður líka að hugsa um matræðið.  Hugsa um mataræðið endalaust hvenær er kominn tími til að borða - nú borðar maður til að lifa en lifir ekki til að borða. ;)
Bara nammi á laugardögum.
Bara ef þig langar í það.  Kannski langar þig ekkert í nammi.
Bara í góðan mat, hafragrautur er bara góður ef þig langar í eitthvað gott.
Málið er að TAKA ÁKVÖRÐUN og hafa eitthvað til að stefna að.  Staðfestu er líka gott að hafa, vera ákveðinn í því sem maður ætlar sér að gera.  Hugsa að ég sé staðföst svo ég er heppin. Nú er bara að hafa agann á sér og hugsa, ég elska snjó, kveðja Setta.... Sendi ykkur um hörkuviku.
 

Ekki festa ykkur á sama fæðið endalaust. Gott er að taka eina viku í einu og borða eitthvað alveg nýtt. Mæli samt ekki með kúrum en þú átt alveg að borða mat á þessum kúr. 
Hér er smá hugmynd.  

- Engan ost þessa viku.
- Morgunmaturinn: Egg fjóra daga (ekki borða nema eina eggjarauðu), morgunkorn þrjá daga (helst eitthvað gróft) og að sjálfsögðu ávöxtur, kaffi eða te og brauð
- Aðeins gróft brauð.
 - Kjöt og kjúklingamáltíðir í hádeginu.
 - Aðallega fisk í kvöldmatinn.
 - Minnstu skammta af kjöti, fisk o.s.frv. í hádegi og á kvöldin.
 - Lágmark 8 ólíkar grænmetistegundir yfir vikuna (ekki bara gulrætur eða þannig).
- Allir ávextir.
- Hrísgrjón (brún eða bland af brún og hvítum), pasta (gróft), kartöflur.
- Aðeins léttar mjólkurvörur (t.d. ab-létt, undanrenna).
 - Reyndu að borða kvöldmatinn eins snemma og þú getur.
Þú ferð létt með þetta allt, annað er ekki leyfilegt inn fyrir þínar varir þessa viku. Þú byrjar á mánudaginn. Svo verður bara gaman að blogga um þetta í vikunni. Góða helgi, kveðja Setta...:haha: Gangi þér vel verðum öll saman í þessu.   


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 13:55:56 / seolafs

Hreyfðu þig - njóttu lífsins

Hreyfingarleysi og kyrrsetur ráða miklu um það hvort menn veikjast af  hjarta- og æðasjúkdómum, sykursýki og offitu, svo dæmi sé tekið.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin áætlar að hreyfingarleysi valdi meira en tveimur milljónum dauðsfalla á ári hverju. Ásamt röngu mataræði og reykingum er  hreyfingarleysi talið valda allt að 80% ótímabærra kransæðasjúkdóma, og mun kostnaður vegna þess sem oft er nefnt „velmegunarsjúkdómar" margfaldast á næstu áratugum ef menn temja sér ekki heilsusamlegri lífhætti.

Allir hafa gott af hreyfingu, hversu lítil sem hún er og að aldrei er of seint að byrja að stunda reglulega hreyfingu

Lágmarkshreyfing til þess að koma í veg fyrir sjúkdóma er 30 mínútna hreyfing á dag með hóflegri áreynslu, hvort heldur það er rösk ganga, sund, hjólreiðar, margvíslegir leikir eða dans eða jafnvel það að hreinsa til í garðinum eða gera hreint heima hjá sér. Hreyfingin gerir sama gagn þótt 30 mínútum sé skipt í nokkrar styttri lotur yfir daginn.

Hreyfum okkur - njótum lífsins...Kveðja Setta


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 13:35:35 / seolafs

Kanill

Sænsk rannsókn hefur sýna að kanill getur verið góður í meðferð við sykursýki 2.
Rannsóknin sýndi marktæka minnkun í blóðsykri hjá sjúklingum sem notuðu 6 grömm af kanil út á hrísgrjónagrautinn sinn, í samanburði við sjúklinga sem ekki notuðu kanil.
Í kanilnum hafa fundist efni sem hægt er að segja að líki eftir insúlíni. Einnig hefur komið í ljós að kanillinn tuttugufaldar efnaskipti glúkósa.

Kanillinn býr yfir ýmsum öðrum eiginleikum og má segja að hann sé mögnuð lækningajurt. Auk þess að draga úr blóðsykri, minnkar kanillinn einnig slæma kólesterólið í blóðinu.

Aðrir eiginleikar þessa ódýra og góða krydds er að það bætir meltingu, dregur úr miklum tíðarblæðingum og vinnur gegn hjartaáföllum. Kanillinn dregur úr gasmyndun í meltingarvegi, getur stöðvað myndun magasárs og vinnur á móti sveppasýkingum.

Rannsóknir hafa einnig sýnt að efni í kanil stöðva vöxt krabbameinsfrumna í lifur.
Kanilinn er hægt að nota út á mat, drekka hann í tei og nota hann í olíum.
Forðast skal kanil ef vandamál í blöðruhálskirtli eru til staðar.
Umm hann er bara góður. Bestur út á heitt epli.  Kveðja Setta.... :D
 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 17
Dagsetning
23. febrúar 2012
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 apríl
RSS tengill
Heimsóknir
Í dag:  5  Alls: 40484
Myndir
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 apríl